Víðidalstunga II
Fréttir Neuigkeiten
Fréttir
2012
2011
2010
Neuigkeiten
Eldri PDF Ältere PDF
Um okkur Über uns
Hryssur Zuchtstuten
Myndasafn Fotoalbum
Til sölu Verkauf
English - Svenska
Hestanudd Massage
Hafa samband Kontakt

Fréttir 2012    "Weiter" = Fleiri fréttir (neðst til hægri)   "Zurück" = til baka.

                          Hægt að stækka myndirnar með því að smella á þær.

stjörnunótt (2).jpg
Nokkrar myndir af Stjörnunótt teknar í byrjun maí. Viljug og skemmtileg hryssa, létt í snúningum og hefur haft gaman af að reka fiðurfénað úr nýræktinni svo líklega verður hún snúningalipur þegar kemur að því að smala kindum í haust.
Myrkvi copy.jpg
Nú í apríllok fara hrossin að víkja fyrir kindunum.Tími til útreiða er að verða ansi lítill en ef það er lagt á nýtist útreiðatúrinn í að reka fiðurfénað úr nýræktinni.Myrkvi fór að heiman í mánuð og kom aftur vel reiðfær.Myndin sýnir hann á fínu brokki og sýnir líka Kardinála í nýju stíunni sinni en búið er að taka 2 af 6 í notkun.
plötuafkv (1).jpg
Afkæmi Plötu koma vel út. Nokkur eru seld en á myndinni eru þau sem eru í okkar eigu. Aþena átti sitt fyrsta afkæmi 2011,myndina tók Vigdís. Álfrún er í þjálfun hjá Ísólfi, myndin er af síðu hestamannafélagsins Þyts tekin í mars í fyrstu keppni Álfrúnar. Ótamin eru Dalvar, Dís, Askur og Erpur.
sys.jpg
Stjörnunótt kom heim úr töltnáminu í byrjun mars. Á miðri mynd má sjá árangurinn. Myndin sýnir líka Rökkva, Myrkva og Sóldögg. Öll eru þau undan 1.v. hestum og Náttdröfn. Hún gefur myndarleg hross sem við erum mjög ánægð með. Nánar um ættir má sjá með því að smella á hryssur hér til vinstri.
      Weiter
Top